Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
REF 4528704
Nútímaleg raðhús á tveimur hæðum, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Á neðri hæð er opin setustofa, borðstofa og eldhús og aðgangur að verönd sem er að hluta yfirbyggð og garði. Það er gestasalerni og en-suite svefnherbergi á þessari hæð líka. Tvö svefnherbergi og baðherbergi eru á fyrstu hæð, auk rúmgóðrar verandar með útsýni yfir garðinn. Fyrir aukakostnað er hægt að setja upp þakverönd og/eða sundlaug í garðinum.
Eignirnar eru afhentar með foruppsetningu fyrir loftkælingu, gólfhita á baðherbergjum, eldhústækjum, rafmagnsgluggahlerum, innbyggðum fataskápum, bílastæði á lóðinni, með fjarstýrðu hliði og foruppsetningu fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum