Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 4708406
Nýr íbúðakjarni með íbúðum og raðhúsum í Ciudad Quesada, sem er svæði á milli Torrevieja og Guardamar. Um er að ræða eitt vinsælasta svæðið á suðurhluta Costa Blanca, sem er einungis í 15 mínútna fjarlægð frá glæsilegum ströndum Torrevieja og Guardamar. Svæðið býður upp á fjölbreytta þjónustu og býr yfir eigin golfvelli, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
La Mata náttúrugarðurinn er einungis í 5 mínútna fjarlægð og hentar hann vel fyrir áhugafólk um útivist, með fjölda gönguleiða og hjólastíga. A-7 hraðbrautin tengir svæðið við önnur svipuð hverfi, eins og Torrevieja og Guardamar og alþjóðaflugvöllurinn í Alicante er einungis í 35 mínútna fjarlægð. Þetta er kjörið svæði bæði fyrir þá sem leita að sumarhúsi jafnt sem eign til að búa í.
Hönnun kjarnans miðar að því að íbúar hans geti notið lífsstílsins við Miðjarðarhafið en allar eignirnar eru með 2-3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum og eru fáanlegar í ýmsum útgáfum; s.s. íbúðir með einkagarði, íbúðir með sólstofu og tveggja hæða raðhús með bæði sólstofu og einkagarði. Allar eignirnar eru með opnu eldhúsi, stofu og borðstofu sem opnast út á við með svalahurðum. Þá eru allar eignirnar með einka bílastæði.
Kjarninn er alveg lokaður og er hannaður í kringum dásamlega sameiginlega sundlaug með stórum garði sem hentar afar vel til sólbaða og slökunar.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum