Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
Þessi eign er ekki í boði
REF 151027
Nýmóðins einbýlishús í íbúðahverfi El Raso, Guardamar. Svæðið er staðsett milli Guardamar, Torrevieja og Ciudad Quesada og auðvelt er að nálgast alla þá þjónustu sem þessir stóru bæir bjóða uppá. Umhverfið er fallegt, nálægt þjóðgarðinum Lagunas de la Mata og strendur Guardamar eru í aðeins 4 km fjarlægð.
Húsin eru byggð á tveimur hæðum og lóðirnar eru frá 225 til 340 m2 að stærð. Öll húsin eru með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og opnu alrými; stofu, borðstofu og eldhúsi. Hiti er í gólfum á baðherbergjum, þakverönd, einkasundlaug, húsin eru klár fyrir uppsetningu á loftkælingu og garður er afhentur fullfrágenginn með gervigrasi og pöntum. Möguleiki er á að gera ýmsar breytingar á eigninni; það má leggja fyrir gólfhita í öllu húsinu. Fáðu upplýsingar um alla möguleikana sem þessi hús nálægt hafinu bjóða uppá.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
Guardamar er einn af helstu ferðamannastöðunum við Suður Costa Blanca, ásamt Orihuela Costa, Torrevieja og Santa Pola.
Guardamar hefur 11 km. langa mishæðótta strönd og þar má njóta átta breiðra, gullinna stranda. Þar á meðal eru nektarströndin Los Tusales og hin fallega Pinada, við hlið hreyfanlegu sandhólana sem liggja meðfram sjávarsíðunni í Guardamar. Fasteignir sem í boði eru í Guardamar eru á breiðu verðbili. Sérstakt úrval er að finna í fasteignum við ströndina, með ótrúlegu sjávarútsýni og fyrsta flokk gæðum. Hér má sjá fasteignirnar við ströndina í Guardamar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum