Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf
Þessi eign er ekki í boði
REF 200781
Lúxus einbýlishús við hinn einstaka golfvöll Las Colinas, Orihuela Costa. Hverfið við Las Colinas er byggt í gríðarfallegu náttúrulegu umhverfi við Miðjarðarhafsskóglendi og í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð frá strönd. Íbúar Las Colinas njóta þeirra forréttinda að hafa einkaaðgang að Strandklúbbi í fyrstu línu við ströndina í Campoamor.
Í boði eru nútímaleg 3ja svefnherbergja einbýli sem byggð eru á lóðum frá 400 til 970 m2 að stærð með plássi fyrir einkasundlaug sé þess óskað. Öllum húsunum fylgir bílastæði.
Sameiginleg aðstaða; sundlaug og garðar tilheyra húsunum.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf
Las Colinas Golfklúbburinn er staðsettur í Orihuela Costa, í 330 hektara dal á milli hóla og sjávar. Einstök íbúðabyggð í forréttindaflokki, sem dreift er í kringum hinn frábæra golfvöll Colinas Golf. Þetta er ein af fáum lokuðu byggðum á svæðinu, en eftirlit er með aðgangi allan sólarhringinn.
Úrvalsíbúðir og glæsihús eru í boði fyrir íbúa Las Colinas Golf, ásamt ró og kyrrð í öruggu umhverfi, þökk sé þjónustu staðarhaldara. Má nefna Casa Club, þar sem finna má veitingastaði og verslanir, og Colinas Beach Club, sem er við ströndina við Campoamor og einungis fyrir húseigendur og íbúa Las Colinas Golf. Skoðið íbúðir og einbýli í Las Colinas Golf.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum