Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 139347
Glæsileg íbúðabyggð staðsett á fyrirtaks stað í Orihuela Costa, með þremur stórkostlegum golfvöllum í næsta nágrenni: Real Club de Golf Campoamor, Las Ramblas Golf og Villamartin Golf. Að auki eru íbúðirnar í innan við 5 mínútna göngufjarlægð frá helstu þjónustu, svo sem bönkum, apótekum, veitingastöðum og matvöruverslunum ... og aðeins 10 mínútna akstur er að bestu ströndunum á suður Costa Blanca, svo sem ströndinni í Punta Prima, Campoamor ströndinni og Mil Palmeras ströndinni.
Í kjarnanum eru tólf íbúðir í nýtískulegum og mínímalískum stíl. Sex íbúðir með tveimur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, garði og bílastæði auk verandar bakatil eru á jarðhæð og sex íbúðir með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, svölum, bílastæði og þakverönd með stórkostlegu útsýni að sjó eru á efri hæð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum