Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 3499972
Íbúðakjarni í hinu vinsæla Villamartín íbúðahverfi, við suður Costa Blanca. Á svæðinu eru 3 golfvellir (Villamartín, Las Ramblas og Campoamor) og aðeins 5 mínútur tekur að aka að ströndum Orihuela Costa. Kjarninn er nálægt úrvali verslanakjarna með öllum daglegum nauðsynjum og Zenia Boulevard er skammt undan. Staðsetningin gerir þetta að góðu fjárfestingartækifæri fyrir bæði dvöl í fríum og búsetu árið um kring.
Í boði eru íbúðir með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, í þremur mismunandi gerðum; jarðhæð með stórri verönd/garði, miðhæð með rúmgóðri verönd og þakíbúð með sér þakverönd. Allar íbúðirnar hafa opið alrými sem sameinar setustofu, borðkrók og eldhús og en-suite hjónaherbergi.
Kjarninn er byggður í nútíma Miðjarðarhafsstíl með náttúrulegum steinhliðum og görðum með náttúrulegu grasi og úrvali af staðbundnum plöntum og pálmatrjám. Í miðju kjarnans er stórt sundlaugarsvæði fyrir fullorðna og börn, með nuddpotti. Bílakjallari er til staðar.
Íbúðirnar eru búnar góðum frágangi og velja má um ýmislegt. Eignirnar eru afhentar tilbúnar til uppsetningar á loftkælingu, þeim fylgja fataskápar, dyrasími, geymsla og bílastæði.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum