Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 3713912
Lítill íbúðakjarni í hverfinu Blue Lagoon, nálægt Villamartín við suður Costa Blanca. Mjög nálægt ýmsum daglegum nauðsynjum, börum og veitingastöðum og í stuttri akstursfjarlægð frá ýmsum matvöruverslunum og verslanamiðstöðinni Zenia Boulevard. Svæðið er líka tilvalið fyrir útivist, með fjórum frábærum golfvöllum í 10 km radíus, göngu- og hjólastígum, að ógleymdum ströndum Orihuela Costa.
Kjarninn samanstendur aðeins af fjórum íbúðum, hver með 2 svefnherbergjum og 1 baðherbergi auk þakverandar. Opin stofa, borðstofa og eldhús eru í eignunum og úr alrými er gengið út á verönd. Þökk sé stórum glerhurðum í stofu eru íbúðirnar bjartar. Hver eign hefur eigin þakverönd og á þakinu er einnig sameiginlegt svæði með sundlaug og frábæru útsýni.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum