Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Punta Prima
REF 3444499
Nýr kjarni einbýlishúsa í Punta Prima, vinsælu svæði milli Torrevieja og Orihuela Costa. Svæðið hefur mikið úrval af daglegri þjónustu, matvöruverslunum, verslunum og veitingastöðum og kjarninn er staðsettur aðeins 5 mínútur frá Punta Prima ströndinni. Hin vinsæla Zenia Boulevard verslunarmiðstöð er í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð sem og aðrar strendur Orihuela Costa. Það er einnig val um fjóra golfvelli og aðra íþróttastarfsemi eins og tennis og padel í næsta nágrenni, fyrir utan vatnaíþróttir við ströndina.
Einbýlishúsin eru á tveimur hæðum, auk þakverandar og með 4 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Aðalhæðin er með opinni hönnun með rúmgóðri stofu og borðkrók og eldhúsi í amerískum stíl. Stóru gluggarnir í setustofunni opnast út á rúmgóða verönd og sundlaugarsvæði. Einnig er á þessari hæð baðherbergi og hjónaherbergi. Á efri hæðinni eru 3 svefnherbergi, þar af eitt hjónaherbergi með sér baðherbergi og aðgangi að lítilli verönd. Þakveröndin er 43m2 og býður upp á auka útisvæði til að njóta lífsstíls við Miðjarðarhafið allt árið.
Það er mögulegt að sérsníða húsið, eins og að sameina tvö svefnherbergi og breyta því í 3ja svefnherbergja einbýlishús, eða setja sumareldhús á þakveröndina svo dæmi séu nefnd.
Einbýlishúsin eru byggð með vönduðum efnum og eru afhent tilbúin til uppsetningar á loftkælingu, gólfhiti er á baðherbergjum og fataskápar, einkasundlaug og bílastæði á lóð fylgja.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Punta Prima
Rétt við mörk Torrevieja og Orihuela Costa er Punta Prima, fullkomin íbúðabyggð fyrir þá sem vilja kaupa fasteign á Costa Blanca.
Þar er að finna stórkostlegt úrval þjónustu, auk þess fylgir sá kostur að vera nálægt miðbæ Torrevieja en njóta um leið ró og kyrrðar á nokkuð þéttbyggðu svæði. Meginaðdráttarafl byggðarinnar í þessum hluta Orihuela Costa er gullin ströndin, strandgatan og ótrúlegt úrval tómstunda, skemmtana og fasteigna. Skoðið fasteignaúrvalið við ströndina í Punta Prima:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum