Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Águilas
Þessi eign er ekki í boði
REF 3077031
Íbúðakjarni, staðsettur aðeins 250m frá ströndinni í Águilas við Costa Cálida. Kjarninn er í göngufæri frá miðbænum þar sem finna má allar daglegar nauðsynjar eins og matvöruverslanir, banka og apótek, sem og tómstundaaðstöðu eins og kvikmyndahús og veitingastaði.
Kjarninn samanstendur af íbúðum með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Allar íbúðirnar eru með opinni stofu, borðstofu og eldhúsi ásamt þvottahúsi. Hjónaherbergi er með en-suite baðherbergi en í 3ja svefnherbergja eignum er fataherbergi að auki. Allar verandir snúa í suður, með frábæru útsýni yfir Miðjarðarhafið. Sameiginlegt svæði samanstendur af stórri sundlaug og bílageymslu.
Eignirnar eru afhentar tilbúnar til uppsetningar á loftkælingu/hitun, innbyggðir fataskápar og einkabílastæði í bílageymslu fylgja en í stæðinu er lagt fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla.
Costa Cálida, Costa Murcia Sur, Águilas
Aguilas er staðsett syðst við Murcia ströndina sem liggur að Andalúsíu og er fræg fyrir strendur, veiðar og ríka menningararfleifð. Aguilas býr að 28 km langri strandlengju og þar má telja 36 afar fallegar strendur og víkur, margar þeirra prýddar Bláa Fánanum sem er viðurkenndur gæðastaðall. Njóta má þægilegra þéttbýlisstranda sem umkringdar eru þjónustu, auk nokkurra fullkomlegra óspilltra paradísa við Miðjarðarhafið, svo sem Cabo Cope og Puntas de Calnegre, þar sem horfa má á hrífandi sólarupprásir.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum