Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Þessi eign er ekki í boði
REF 3055752
Nýr kjarni einbýlishúsa við La Serena Golf, í Los Alcázares, Costa Cálida. La Serena Golf er 18 holu völlur og þar má finna 4urra stjörnu SPA hótel en hótelið stendur til móts við Mar Menor. Rétt um 1 km er að miðbæ Los Alcázares og allri þjónustu sem þar er að finna, svo sem matvöruverslanir, apótek, tómstundir, smábátahöfn og fleira. Í boði eru hús á tveimur hæðum auk þakverandar, öll með 3 svefnherbergjum, þar af tveimur með eigin baðherbergi og fataherbergi en alls eru 3 baðherbergi og gestasalerni í húsunum. Opið alrými sem sameinar stofu, borðstofu og eldhús. Stór þakverönd, garður, einkasundlaug og bílastæði fylgja hverri eign.
Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum