Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
Þessi eign er ekki í boði
REF 4787214
Kjarninn býður upp á hús á einni hæð með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum og eru fáanleg í ýmsum útgáfum; raðhús með þakverönd og einbýli með eða án þakverand. Einbýlishúsin eru byggð á lóðum sem eru 325-534 m2. Öll húsin eru rúmgóð og eru með stóra glugga/hurðir sem opnast út á verönd og sundlaugarsvæðið. Hjónaherbergin eru öll með sér baðherbergi inn af og opnast út á verönd. Útisvæðin eru kjörin til að njóta þess að geta verið úti í Miðjarðarhafsloftslaginu á Costa Cálida.
Húsin eru byggð með úrvals byggingarefnum og þeim mun fylgja fullbúin loftkæling, eldhústæki, rafknúnar gardínur í svefnherbergjum, fullbúin baðherbergi með handklæðaofni, inni- og útilýsing, einkasundlaug með tengi fyrir hitapumpu og bílastæði.
Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið.
Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum