Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
Þessi eign er ekki í boði
REF 871888
Nýr kjarni raðhúsa á rólegu svæði Santiago de la Ribera. Stutt frá frábærum ströndum og nokkrum mínútum frá bænum San Javier, með allri þjónustu sem þar er að finna.
Um er að ræða 20 raðhús með sameiginlegu svæði með sundlaug og fallegum görðum. Öll húsin eru á tveimur hæðum og hafa 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi og nútímalega hönnun. Bjartar og fallegar eignir þar sem sólarljósið er nýtt til fullnustu. Eigin garður, verönd, þakverönd og bílastæði á lóð fylgir húsunum.
Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið.
Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum