Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
Þessi eign er ekki í boði
REF 2002631
Nýr íbúðakjarni í San Pedro del Pinatar, vinsælum strandbæ við Costa Cálida. Nálægt allri nauðsynlegri þjónustu í bænum og rétt hjá saltvötnunum í San Pedro auk þess sem stutt er að aka að ströndinni í Torre de la Horadada. Tilvalin staðsetning fyrir þá sem vilja dvelja allan ársins hring eða þá sem nýta vilja eignina í fríum. AP-7 hraðbrautin er skammt undan og tengir svæðið við flugvelli í Murcia og Alicante.
Í boði eru íbúðir með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum þar sem velja má milli jarðhæða með stórri verönd eða efri hæða með eigin þakverönd. Eignirnar eru búnar stórum gluggum og eru bjartar, með opinni stofu, borðstofu og eldhúsi. Svefnherbergin eru bakatil í eignunum og hjónaherbergi búin ensuite baðherbergi. Hverri eign fylgir bílastæði.
Á sameiginlegu svæði eru sundlaug og garðar og festa má kaup á geymslu að auki.
Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.
Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum