Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Benalmádena
Þessi eign er ekki í boði
REF 4018796
Glæsilegur íbúðakjarni í íbúðahverfi í Benalmádena við Costa del Sol. Fullkominn staðsetning, með fallegu náttúrulegu umhverfi, og í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð frá hinni stórkostlegu Benalmádena smábátahöfn og öllum þeim þægindum sem þessi borg býður upp á. Sögulegur miðbær Torremolinos og miðbær Málaga, með allri þjónustu og ströndum, eru í 10 og 25 mínútna fjarlægð.
Íbúðirnar eru fáanlegar með 2, 3 og 4 svefnherbergjum og 2 eða 3 baðherbergjum. Eignirnar eru með sér eldhúsi og rúmgóðri stofu með stórum glerhurðum sem opnast út á verönd, með stórkostlegu útsýni yfir hafið eða fjöllin, eftir staðsetningu íbúðar. Gæðafrágangur er á eignunum og þeim fylgir loftkæling, geymsla og bílastæði, meðal annars.
Í sameign er sundlaug, garðar og sólbekkir.
Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Benalmádena
Benalmádena liggur frá fjallsrótum Sierra de Mijas að strandlengjunni. Bærinn er staðsettur í efri hluta svæðisins og þaðan er stórkostlegt útsýni. Neðar er þéttbýlið Arroyo de la Miel, þar sem flestir íbúar eru staðsettir og að lokum er það Benalmádena-Costa, en þar má finna fjölmörg hótel, golfvelli, spilavíti og sportbátahöfn. Íbúafjöldi í Benálmadena er 72.000 sem gerir bæinn að sjöunda fjölmennasta sveitarfélagi héraðsins og setur hann í annað sæti á eftir borginni Málaga.
Benalmádena er í dag einn helsti ferðamannastaðurinn við Costa del Sol og þekkt fyrir framboð af dægradvöl og tómstunda aðstöðu en þar á meðal er vatnagarður, tvö sædýrasöfn, spilavíti, kláfferja og ein stærsta sportbátahöfn í Andalúsíu. Svæðið er mjög vel tengt við höfuðborgina og aðra þéttbýliskjarna við Miðjarðarhafsstrendur, þar sem AP-7 hraðbrautin fer í gegnum það frá austri til vesturs.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum