Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola
REF 4354530
Samstæðan samanstendur af íbúðum með 2 og 3 svefnherbergjum af mismunandi gerðum; jarðhæðaríbúðum með görðum, miðhæðaíbúðum og þakíbúðum með stórum veröndum. Sumar gerðirnar eru á tveimur hæðum. Allar íbúðirnar eru mjög rúmgóðar og með stórum gluggum sem hleypa náttúrulegu ljósi inn. Þessar íbúðir eru hannaðar með nútímalegum og sjálfbærum efnum og eru byggðar með vönduðum frágangi. Hverri íbúð fylgir bílastæði. Gegn aukakostnaði má kaupa auka bílastæði og/eða geymslu.
Þetta er lokaður kjarni sem býður upp á öryggi með aðgangsstýringu. Eitt helsta aðdráttarafl kjarnans er stórbrotin sameiginleg aðstaða, þar á meðal fallegir garðar með staðbundnum plöntum, þrjár stórar sundlaugar, leiksvæði fyrir börn, líkamsræktarstöð með gufubaði og búningsklefum, fjölnota herbergi, félagsaðstaða og sameiginlegt þvottahús.
Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola
Fuengirola er borg sem angar af Andalúsíu og býður uppá víðfeðma strandlengju sem skreytt er stórkostlegum ströndum. Þessi borg í Málaga héraði hefur um langt skeið verið eftirsóttur ferðamannastaður og býður uppá fjölbreytt úrval þjónustu og innviða, svo sem golfvelli, hestabúgarða, skemmtigarða, hótel og veitingastaði, svo ekki sé minnst á menningarhefðir og hátíðir. Menningarlegir viðburðir í Fuengirola, ásamt vinsælum hátíðahöldum, teygja sig yfir árið eins og það leggur sig og endurspegla opið og alúðlegt viðmót innfæddra.
Íbúafjöldi í borginni er um 80.000 manns, sem gerir hana að fimmta fjölmennasta sveitarfélagi Málaga, á eftir höfuðborginni sjálfri, Marbella, Vélez-Málaga og Mijas.
Fuengirola var stofnuð af Föníkumönnum og um hana fóru Rómverjar, Býsantíumenn, Vestgotar og Múslímar ásamt öðrum þjóðum, þar til hún var opinberlega innlimuð í konungsríki Kastilíu, árið 1485. Í dag er Fuengirola mikilvægur ferðamannastaður sem hýsir um 250.000 manns yfir sumartímann og hagkerfi borgarinnar veltur á ferðamannaþjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum