Lúxusvilla með einkasundlaug og einstöku víðáttumiklu útsýni í Benissa

Costa Blanca Norður, Marina Alta, Benissa

Þessi eign er ekki í boði


3

3

174.80 m2

500.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4312115

Einbýlishús í lokuðu íbúðahverfi, aðeins 1 km frá ströndinni í Benissa, við norður Costa Blanca. Svæðið er nálægt fjölbreyttri daglegri þjónustu og virtum veitingastöðum í nærliggjandi borgum, Benissa, Calpe og Moraira. Ýmis konar íþrótta aðstaða er í boði á svæðinu, svo sem og golf, siglingar, tennis og paddle, auk hestaferða. Svæðið er friðsælt og umkringt náttúru og aðeins í stuttri akstursfjarlægð frá ströndinni, La Fustera.

Lúxus einbýlishús á þremur hæðum, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, á 500m2 lóð. Aðalstofan er rúmgóð og opin, með lofthæðarháum gluggum sem opnast út á verönd sem er yfirbyggð að hluta. Veröndin og grillsvæðið er kjörinn staður til að borða undir berum himni, auk þess að njóta einstaks útsýnis yfir Miðjarðarhafið og klettinn, Peñón de Ifach. Fyrsta hæðin er frátekin fyrir hjónaherbergið, með sér baðherbergi og fataherbergi, ásamt verönd með útsýni yfir útsýnissundlaugina og garðinn. 2 en-suite svefnherbergin sem eftir eru, eru í kjallaranum, bæði með aðgangi að lítilli verönd og fallegum garði. Í kjallara er aukaherbergi sem hægt er að nota fyrir geymslu eða annað. Lóðin er umkringd furutrjám, sem tryggir ró og næði, án þess að hindra útsýni.

Húsið er fallega hannað, með glæsilegum hvítum veggjum og náttúrusteini á framhlið. Hægt er að sérsníða innréttingar að vild, með miklu úrvali af efnum og frágangi. Húsinu fylgir loftkæling, eldhústæki, gólfhiti á allri eigninni, LED lýsing innandyra, rafmagnsgluggahlerar í svefnherbergjum, grillsvæði, útsýnissundlaug, garður og yfirbyggt bílastæði á lóð.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Norður, Marina Alta, Benissa

Á milli hafs og fjalla er Benissa að finna, fallegt þorp á norður Costa Blanca en á svæðinu eru paradísarvíkur með kristaltæru vatni, fullkomnar fyrir íþróttir eins og köfun, seglbretti eða seglbáta. Einnig er hægt að njóta gönguferða í Benissa sem er umkringt fjöllum og hlíðum.

Benissa er talinn vera einn af þessum útvöldu áfangastöðum við Miðjarðarhafsströndina og fasteignaúrvalið ber sannarlega merki þess, því einkennandi eru lúxuseinbýli. Skoðið fasteignaframboðið í Benissa.

  • 69 km
  • 62 km
  • 62 km
  • 1 km
  • 60 km
  • 24 km

Nánari upplýsingar um Benissa

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.