Lúxuseinbýli með einkasundlaug, kjallara og stórkostlegu útsýni yfir hafið í Cumbre del Sol

Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol

Þessi eign er ekki í boði


4

4

783.00 m2

1087.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4677253

Lúxuseinbýli með undurfögru útsýni yfir hafið í einstakri íbúabyggð í Cumbre del Sol á Costa Blanca Norte. Öruggur og rólegur staður á milli Jávea og Moraira, í aðeins 5 mínútna fjarlægð frá Playa Moraig og fallegu ströndunum Calas Llebeig og Los Tiestos. Íbúabyggðin er hluti af afgirtu hverfi með stýrðum aðgangi og þar er að finna ýmis konar þjónustu, eins og verslunarsvæði með matvöruverslun, hárgreiðslustofu, apótek, bari og veitingastaði og alþjóðlegan framhaldsskóla. Fyrir íþróttaunnendur er mikið úrval íþróttaaðstaða eins og tennis- og padelvellir, reiðvöllur og ýmsar gönguleiðir. Þökk sé framúrskarandi vegakerfi er hægt að komast fljótt og örugglega á nálæga ferðamannastaði, eins og Moraira sem er í 10 mínútna fjarlægð, Jávea í 15 mínútna fjarlægð og Calpe í 30 mínútna fjarlægð. Flugvöllurinn í Alicante er í um það bil klukkutímafjarlægð. 

Í boði er lúxuseinbýli með fjórum svefnherbergjum og fjórum baðherbergjum, á tveimur hæðum auk kjallara, á 1087 m2 lóð. Við hönnun hússins var umfram allt tekið tillit til birtu og átta, dagsljósið er nýtt til hins ýtrasta og útsýnis er hægt að njóta úr öllum herbergjum. Á efri hæð eru þrjú, rúmgóð svefnherbergi, öll með baðherbergi, innbyggðum skápum og stórum svölum. Á sömu hæð er einnig inngangur, hol og opin bílskúr fyrir tvö ökutæki. Á neðri hæð er rúmgott, opið svæði með glæsilegu eldhúsi, borðstofu og bjartri stofu þaðan sem útgengt er að sundlaugarsvæðinu. Á þessari hæð er einnig gestasalerni og stærsta svefnherbergið með baðherbergi, sem er með tveimur klósettum, baði og sturtu. Öll helstu herbergi eru með svölum.  Á útisvæðinu eru stórar svalir, stór verönd, einstök sundlaug og garður. 

Kjallaranum er skipt upp í tækjaherbergi, geymslu, tvennar svalir og stórt svæði sem hægt er að hanna eftir eigin höfði, aukaíbúð, vínkjallara, leikja- eða líkamsræktarsal eða hvað það sem hugurinn girnist. 

Eignin er byggð úr fyrsta flokks efni, eldhúsið er fullbúið með hágæða heimilistækjum, loftvarmakerfi, hita í gólfum, loftræstingu um stokk með hitastilli, rafknúnum gardínum, innri og ytri lýsingu, viðvörunarkerfi með vídeói sem tengist snjalltæki, snjallkerfi, rafknúnu hliði fyrir ökutæki, ljósspennukerfi fyrir húsnæði sem nota 5,5 kw, einkasundlaug, vökvunarkerfi fyrir garðinn og hleðslustöð fyrir rafbíla.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • yfirbyggt bílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol

Cumbre del Sol tilheyrir bæjarfélaginu Benitachell, sem liggur milli tveggja vel þekktra bæja, Jávea og Moraira, og er í aðeins 12 km fjarlægð frá Calpe, 10 km frá AP7 hraðbrautinni, 30 km frá Benidorm, 75 km frá Alicante og 102 km frá Valencia.

Magnaðir klettar, sem sumir eru yfir 100 metra háir bjóða íbúum svæðisins uppá stórkostlegt útsýni yfir hafið frá nokkrum útsýnisstöðum umkringdum vernduðum svæðum eins og þjóðgarðinum Natural Park of Granadella, þar sem ganga má í hæðunum yfir klettana og skoða hellana

Strandlengjan við Benitachell er tilvalin fyrir þá sem hafa gaman af köfun og öðrum vatnaíþróttum. Frá Cumbre del Sol er beinn aðgangur að þremur fallegustu klettavíkum héraðsins, Cala Moraig, Cala de Los Testos, og Cala del Llebeig.

Nálægð svæðisins við bæina Jávea og Moraira gerir það að tilvöldum stað fyrir þá sem leita að eign við Costa Blanca í gríðarfallegri náttúru þar sem að auki má finna góða þjónustu. Cumbre del Sol er þannig einstök staðsetning.

Svæðið teygir sig eftir strandlengjunni um 3.700.000 m2, og skiptist í nokkur íbúðahverfi með einbýlum, raðhúsum og íbúðum sem öll eru umkringd gróðursælum reitum og Miðjarðarhafið er skammt undan.

  • 953 km
  • 69 km
  • 70 km
  • 1 km
  • 68 km
  • 32 km

Nánari upplýsingar um Cumbre del Sol

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.