Costa Blanca Norður, Marina Alta, Moraira
Þessi eign er ekki í boði
REF 3575117
Nútíma einbýlishús staðsett í friðsælu íbúðahverfi í Moraira, við norður Costa Blanca. Þökk sé landslagi nýtur húsið stórkostlegs og víðáttumikils sjávarútsýnis, og er staðsett aðeins 15 mínútur frá strandbænum Moraira. Bærinn býður upp á úrval af daglegum nauðsynjum, svo sem matvöruverslanir, heilsugæslu, bari og veitingastaði, auk alþjóðlegs skóla. Þá er ýmis útivist í boði á svæðinu; gönguleiðir, golfvellir, smábátahöfn, siglingaklúbbur og stórkostlegar strendur.
Eignin er á tveimur hæðum auk þakverandar og byggt á 1020 m2 lóð, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Í alrými eru tvö aðskild rými, með sjálfstæðu eldhúsi og borðkrók. Tvöföld lofthæð er í stofu og úti fylgir sumareldhús með grillaðstöðu. Þá er gestasalerni og baðherbergi sem nálgast má frá sumareldhúsi ásamt geymslu og fjölnotaherbergi í húsinu. Á efri hæð er hjónaherbergi, með sér baðherbergi og fataherbergi, auk 2 svefnherbergja til viðbótar og baðherbergis. Þessi hæð þjónar einnig sem aðalinngangur að húsinu.
Eignin er byggð með gæðaefnum og náttúrusteinn og viður einkennir útlit hennar. Loftkæling, eldhústæki, marmaragólf, fataskápar, sjálfvirkt vökvunarkerfi, stór einkasundlaug, foruppsetning fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla og bílastæði á lóð fylgja.Costa Blanca Norður, Marina Alta, Moraira
Moraira er fallegt Miðjarðarhafsþorp á milli Calpe og Jávea, og ber af vegna náttúrulegra stranda og kristalstærra víka. Fasteignaframboðið í Moraira samanstendur aðallega af einstökum þéttbýliskjörnum með lúxuseinbýlum. Einn af eftirlætisstöðum viðskiptavina sem leita eftir fyrsta flokks húsnæði við ströndina.
Moraira veitir íbúum öryggi, þjónustu, gott loftslag og óviðjafnalegt útsýni yfir Miðjarðarhafið. Skoðið húsnæði við ströndina í Moraira:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum