Costa Blanca Norður, Marina Baja, Altea
Þessi eign er ekki í boði
REF 3244436
Lúxus einbýlishús staðsett í grónu íbúðahverfi í Altea, við norður Costa Blanca. Kjarninn er lokaður og aðeins aðgengilegur íbúum, staðsettur 8 km frá bænum sjálfum, Altea, með margs konar daglegri þjónustu, svo sem stórmörkuðum, verslunum, börum og veitingastöðum. Stunda má ýmsar íþróttir í Altea golfklúbbnum, Olla Beach og Campomanes Nautical Club.
Húsin eru byggð á lóðum sem mælast 817m2 og 1,252m2 og eru á þremur hæðum. Inngangur húsanna er á efstu hæð, sem og bílastæði. Hæðin fyrir neðan hefur 3 en-suite svefnherbergi með aðgangi að verönd með útsýni yfir garðinn. Eitt af þessum svefnherbergjum er hjónaherbergi með sér baðherbergi, fataherbergi og verönd. Á neðstu hæð er opin stofa, borðstofa, gestasalerni, þvottahús og tilkomumikið amerískt eldhús.Stofan opnast út á rúmgóða verönd sem er yfirbyggð að hluta til og afslöppunarsvæði með infinity sundlaug og gestasalerni utandyra. Tilvalinn staður til að njóta stórbrotins útsýnis yfir Miðjarðarhafið.
Velja má um ýmislegt til frágangs á húsunum en þeim fylgir gólfhiti á öllu húsinu, loftkæling, eldhústæki, fataskápar, þjófavarnarkerfi, lyfta sem tengir allar hæðir, þvottahús, sundlaug og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Altea
Altea er af mörgum talin fegursta borgin á Costa Blanca.
Gamli miðbærinn með sínum þröngu og bröttu götum, hvítu húsum og sinni víðfrægu bláu kirkjuhvelfingu, gefa staðnum töfrum gætt yfirbragð og sjarma. Bóhemískt andrúmsloftið í Altea hefur dregið að listamenn sem leita eftir fegurð og einstakri birtu við Miðjarðarhafið. Við sjávarröndina í neðri hluta bæjarins er strandgata, höfnin og siglingaklúbbur. Á þessu svæði er að finna úrval nýbygginga, sér í lagi íbúðir mjög nálægt ströndinni. Í 5 km. fjarlægð frá miðbænum er Altea Hills, lúxus íbúðasvæði þar sem finna má fimm stjörnu hótel og golfvöll. Hér er að finna einstakt úrval fasteigna, með áherslu á lúxusíbúðir og einbýli. Skoðið fasteignirnar á ströndinni við Altea.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum