Costa Blanca Norður, Marina Baja, Benidorm
REF 4856182
Kjarninn býður upp á nútímalegar íbúðir með 1, 2 og 3 svefnherbergjum, og þakíbúðir með 3 og 4 svefnherbergjum og þakverönd. Allar íbúðirnar eru með stofu, borðstofu og eldhús í opnu rými sem opnast út á verönd sem snýr í suður. Hjónaherbergin í stærri íbúðunum er með baðherbergi inn af, og opnast út á verönd. Mögulegt er að velja innréttingar úr miklu úrvali. Íbúðunum fylgir loftkæling, gólfhiti á baðherbergjum og eftir stærð íbúðar, ýmist eitt eða tvö bílastæði. Aukalega er hægt að fá geymslu og auka bílastæði með íbúðunum.
Sameiginlega svæðið býður upp á falleg græn svæði með innlendum trjám og plöntum sem tryggir litla vatnsnotkun. Þá eru tvær saltvatnslaugar á svæðinu, ein fyrir fullorðna og önnur fyrir börn, með strandþema, kjörið til að njóta loftslagsins á Costa Blanca. Þá eru tveir heitir pottar, salerni, leikvöllur, paddle- og tennisvöllur, og fjölnota íþróttavöllur með körfuboltahring. Innisvæðið er með fullbúna líkamsrækt á jarðhæð með stórum gluggum sem hleypa birtu inn og er með útsýni yfir sameiginlega svæðið. Þá er sérstakt svæði fyrir reiðhjól, bílakjallari og bílastæði utandyra. Kjarninn er algjörlega lokaður sem tryggir hámarks öryggi íbúa.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Benidorm
Benidorm er talin vera höfuðborg Costa Blanca. Einskoraður leiðtogi sem áfangastur fyrir fríið, en einnig mikilvægur kjarni búsetuferðaþjónustu á Spáni.
Háar byggingar bera við himininn í Benidorm, og því er borgin oft kölluð „New York Miðjarðarhafsins“. Þar er að finna margar af hæstu byggingum Spánar og fasteignaúrvalið er mjög fjölbreytt, bæði í gerðum og verðum. Fjölbreytt úrval frístunda gera það að verkum að Benidorm er borg fyrir alla. Hvort sem leitað er eftir næturfjöri, fjölskyldustundum eða afslöppun og rólegheitum, þá er endalausa möguleika að finna í Benidorm. Hvort sem um fjárfestingu eða skemmtun er að ræða er öruggt að Benidorm gefur vel af sér fyrir þá sem kaupa fasteign við ströndina. Hér má sjá fasteignaframboðið við ströndina í Benidorm
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum