Costa Blanca Suður, Bajo Vinalopó, Elche, Aspe
REF 3079188
Nýr húsakjarni við golfvöllinn í Font del Llop, í Aspe við suður Costa Blanca. Á svæðinu er klúbbhús með veitingastað og golfbúð. Bærinn Aspe er í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð og býður upp á úrval af daglegum nauðsynjum. Borgirnar Alicante og Elche, sem og strendurnar í Arenales del Sol, eru í 20 mínútna akstursfjarlægð.
Í boði eru einbýli á tveimur hæðum, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum auk þakverandar. Á jarðhæð eru stofa, borðstofa og eldhús ásamt stórri verönd með stórkostlegu útsýni yfir golfvöllinn. Tvö stór svefnherbergi (eitt en-suite) má einnig finna á jarðhæð. Hjónaherbergi með sér baðherbergi er á efri hæð, með aðgangi að þakveröndinni.
Öllum eignum fylgir loftkæling/hitun með Airzone kerfi, fataskápar, gólfhiti á baðherbergjum, einkasundlaug og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Suður, Bajo Vinalopó, Elche, Aspe
Bærinn Aspe liggur við borgina Elche og er í um 20 km. fjarlægð frá ströndinni.
Aðdráttarafl íbúðabyggðarinnar sem sprottið hefur upp við mörk bæjarins eru án efa úrvalsgæði og verð, svo að ekki sé minnst á alla þá þjónustu sem hægt er að finna í Elche. Fyrir þá sem leita að einbýli eða íbúð á góðu verði getur fasteignaúrval okkar í Aspe verið góður kostur. Hér má sjá fasteignaframboðið í Aspe
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum