Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 146763
Glæsilegt einbýli á besta stað í Ciudad Quesada, með allri nauðsynlegri þjónustu í nánd og í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð frá frábærum ströndum Guardamar.
Rúmgóð eign á einni hæð með 3 svefnherbergjum. Falleg hönnun, bæði að innan sem utan þar sem stofan spilar stórt hlutverk með mikilli lofthæð og stórum gluggum. Yfir 100 m2 þakverönd er á húsinu auk 40 m2 kjallara. Lóðin er 518 m2 að stærð og þar með nægt rými til að byggja einkasundlaug.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum