Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 1881036
Nýr kjarni raðhúsa á fallegu og friðsælu svæði við bæinn Rojales. Mjög nálægt nauðsynlegri þjónustu sem bæinn býður upp á og allt um kring má finna fallega náttúru. Tilvalin staðsetning í ró og næði en með þjónustu innan seilingar.
Í kjarnanum eru 13 nútíma raðhús á eigin lóðum, með stórum veröndum. Húsin hafa 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi og kjallara. Á jarðhæð er opin stofa, eldhús, og svefnherbergi. Önnur 2 svefnherbergi má finna á efri hæðinni, með sameiginlegu baðherbergi. Útisvæðið samanstendur af hellulagðri verönd og bílastæði á lóð.
Húsin eru fallega hönnuð með fyrsta flokks frágangi og möguleika á að sérsníða frekar að einhverju leyti. Með því að bæta við þakverönd, má njóta útsýnis yfir svæðið. Kjallarinn er stór og honum er skilað óunnum en þar má bæta við 2 auka svefnherbergjum gegn kostnaði.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum