Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 233113
Nýr kjarni einbýlishúsa á besta stað í Ciudad Quesada, fyrir framan náttúrugarðinn Las Lagunas de La Mata, með allri þjónustu í nágrenninu og aðeins örfáar mínútur tekur að aka að stórkostlegu ströndum Guardamar.
Velja má milli tveggja svefnherbergja einbýlishúss á einni hæð auk þakverandar eða 3 svefnherbergja einbýlishúss á tveimur hæðum með þakverönd. Í báðum tegundum húsanna er opið eldhús, borðstofa og stofa. Húsin eru byggð á 149 til 240 m2 lóðum og öll með eigin garði sem er að hluta til flísalagður, eigin bílastæði og einkasundlaug.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum