Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 254806
Glæsileg einbýlishús með einkasundlaug á rólegum stað í Ciudad Quesada, vinsælu íbúðahverfi sem hefur eigin golfvöll, vatnagarð og ótal veitingahús, bari, matvöruverslanir og tómstundir fyrir alla fjölskylduna fram að bjóða. Stutt er að ströndum Guardamar og Torrevieja.
Húsin má fá í tveimur gerðum; 3ja svefnherbergja einbýli á einni hæð eða 5 svefnherbergja hús með kjallara sem bætir bílskúr og 2 svefnherbergjum til viðbótar við eignina. Báðar eignirnar eru með opnu alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu sem tengist veröndinni og sundlaugarsvæðinu. Vegna staðsetningar lóðanna, njóta öll húsin fallegs útsýnis yfir náttúru og landslag Las Lagunas de La Mata. Húsin eru afhent með eldhústækjum og lagt er fyrir loftkælingu/hitun í stokkum. Gólfhiti er í húsunum. Gera má ýmsar breytingar að eigin vild.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum