Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
Þessi eign er ekki í boði
REF 1870439
Nýr íbúðakjarni í Guardamar, mjög nálægt höfninni og auðvelt að komast á ströndina. 15 íbúðir eru í blokkinni, með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum; mismunandi módel á ólíkum hæðum hússins. Nuddbaðkar er í baðherbergi, eldhústæki fylgja og eignirnar eru tilbúnar fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun. Plastparket á gólfum og bílastæði fylgir hverri eign. Þarna eru fáar eignir eftir, tilbúnar til afhendingar.
Sameiginlegt svæði er með stórri sundlaug og fallegum görðum og nálægt kjarnanum er þjóðgarðurinn La Pinada. Miðjarðarhafið er örstutt frá auk þess sem aðeins nokkrar mínútur tekur að komast í miðbæinn með allri þjónustu sem þar er að finna, allan ársins hring.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
Guardamar er einn af helstu ferðamannastöðunum við Suður Costa Blanca, ásamt Orihuela Costa, Torrevieja og Santa Pola.
Guardamar hefur 11 km. langa mishæðótta strönd og þar má njóta átta breiðra, gullinna stranda. Þar á meðal eru nektarströndin Los Tusales og hin fallega Pinada, við hlið hreyfanlegu sandhólana sem liggja meðfram sjávarsíðunni í Guardamar. Fasteignir sem í boði eru í Guardamar eru á breiðu verðbili. Sérstakt úrval er að finna í fasteignum við ströndina, með ótrúlegu sjávarútsýni og fyrsta flokk gæðum. Hér má sjá fasteignirnar við ströndina í Guardamar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum