Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf
Þessi eign er ekki í boði
REF 4628853
Nýjar einstakar lúxusíbúðir í Las Colinas Golf & Country Resort, á Costa Blanca Sur. Íbúabyggð við frábæran golfvöll, í fallegu umhverfi og mjög nálægt bestu ströndunum við Orihuela Costa. Í miðbænum er að finna golfklúbbinn og bari, veitingastaði, tennisklúbbi, leikfimisal, matvöruverslun og öllum þeim þægindum sem hversdagurinn kallar eftir. Íbúar Las Colinas Golf eru með aðgang að hinum einstaka Beach Club sem er á besta stað á ströndinni við Campoamor. Byggðin er vel staðsett á milli flugvallanna í Murcia og Alicante sem eru í aðeins 40-45 mínútna fjarlægð.
Í byggðinni eru lúxusíbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum í mismunandi gerðum: neðri hæð með verönd-garði, palli og einkasundlaug, íbúðir á miðhæð með stórum veröndum og ris með sólstofum og einkasundlaug. Allar íbúðirnar eru með stórt opið rými þar sem finna má stofu, borðstofu og fyrsta flokks eldhús með aðskildu þvottahúsi. Stórir gluggar í stofunni opnast út á veröndina sem snýr í suður, þar sem hægt er að njóta ótrúlegs útsýnis yfir golfvellina og Miðjarðarhafið. Íbúðir með 3 svefnherbergjum eru með gestasalerni og 3 baðherbergjum. Byggðin býður upp að blanda saman friðhelgi og þægindum einbýlisins í íbúð sem auðvelt er að viðhalda
Hönnun hverrar íbúð ar er úthugsuð af kostgæfni og úr fyrsta flokks efni, þar á meðal loftræstingin sem er leidd um stokk með Air Zone, hita í öllum gólfum, fullbúið eldhús, snjallheimilstækjum, LED-ljósum, geymslu og einabílastæði fyrir tvo bíla.
Íbúarnir geta einnig notið stórkostlegs útsýnis frá sameiginlega garðinum sem er með með stórri sundlaug og sólbekkjum. Nútímalegt íþróttahús, með öllum tækjum og tólum, er að finna undir sameiginlega garðinum, og þaðan er einnig hægt að njóta útsýnis yfir golfvöllinn út um stóra glugga.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf
Las Colinas Golfklúbburinn er staðsettur í Orihuela Costa, í 330 hektara dal á milli hóla og sjávar. Einstök íbúðabyggð í forréttindaflokki, sem dreift er í kringum hinn frábæra golfvöll Colinas Golf. Þetta er ein af fáum lokuðu byggðum á svæðinu, en eftirlit er með aðgangi allan sólarhringinn.
Úrvalsíbúðir og glæsihús eru í boði fyrir íbúa Las Colinas Golf, ásamt ró og kyrrð í öruggu umhverfi, þökk sé þjónustu staðarhaldara. Má nefna Casa Club, þar sem finna má veitingastaði og verslanir, og Colinas Beach Club, sem er við ströndina við Campoamor og einungis fyrir húseigendur og íbúa Las Colinas Golf. Skoðið íbúðir og einbýli í Las Colinas Golf.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum