Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Ramblas
Þessi eign er ekki í boði
REF 6887
Nýtísku íbúðir við Las Ramblas golfvöllinn í Orihuela Costa. Fallegt svæði með afar góðu úrvali þjónustu og dægradvalar. Fullkominn staður fyrir golfarann en í næsta nágrenni eru fleiri freistandi vellir til að spila á. Staðurinn er líka kjörinn fyrir þá sem kjósa að njóta nærliggjandi stranda Campoamor og sportbátahafnarinnar.
Í boði eru íbúðir með 1, 2 eða 3 svefnherbergjum. Stórar svalir, nútíma eldhús og eigið bílastæði í kjallara. Í sameign er glæsileg sundlaug með ,,infinity" brún sem skapar fallegt útsýni yfir næsta nágrenni.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Ramblas
Eins og oft er raunin við Orihuela Costa þá er Las Ramblas íbúðabyggð sem reist var við samnefndan golfvöll, til að uppfylla kröfur þeirra sem kjósa að búa á Costa Blanca í nálægð við golfvelli, í fallegu landslagi nálægt hafinu og njóta framúrskarandi loftslags Miðjarðarhafsins.
Golfvöllurinn Las Ramblas er talinn vera einn sá besti á Costa Blanca og er þar mikið úrval íbúða, en einnig er hægt að finna raðhús og einbýli. Skoðið fasteignaframboðið í Las Ramblas.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum