Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 242383
Nýr íbúðakjarni nálægt golfvöllunum Villamartin og Campoamor, þar sem öll nauðsynleg þjónusta er innan seilingar. Kjarninn er í 5 mínútna akstursfjarlægð frá Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni og aðeins 4 km frá ströndum Orihuela Costa.
Íbúðir á fyrstu og annarri hæð hafa stóra verönd en íbúðir á efstu hæð eigin þakverönd að auki. Íbúðirnar samanstanda af 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og stofu/borðstofu sem tengist eldhúsinu. Öllum eignum fylgir geymsla og bílastæði í kjallara, gólfhiti er á baðherbergjum og eignirnar eru klárar fyrir uppsetningu á loftkælingu og -hitun. Í kjarnanum er sameiginleg sundlaug með heitum potti.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum