Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 3705993
Nýr íbúðakjarni í hverfinu Blue Lagoon sem liggur nálægt Villamartín við suður Costa Blanca. Svæðið er þekkt fyrir fjölmörg þægindi, stórmarkaði, bari og veitingastaði og Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina. Svæðið er líka tilvalið fyrir golfáhugamenn en þar má velja um 4 golfvelli, svo ekki sé minnst á stórkostlegar strendur Orihuela Costa, sem eru í aðeins 7 mínútna akstursfjarlægð.
Kjarninn býður upp á íbúðir með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, ýmist á jarðhæð með sér garði, eða efstu hæð með sér þakverönd. Allar íbúðirnar eru með opinni setustofu, borðkrók og eldhúsi en alrýmið opnast út á verönd. Sameiginlegt svæði inniheldur sundlaug fyrir fullorðna og börn, garðsvæði og bílakjallara með geymslum.
Kjarninn er lokaður af og býður þannig upp á öruggt umhverfi. Íbúðirnar eru byggðar með gæðaefnum og afhentar tilbúnar til uppsetningar á loftkælingu. Þeim fylgja fataskápar, myndavélardyrasími, bílastæði og geymsla.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum