Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 4984611
Íbúðirnar eru með 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi og eru fáanlegar í mismunandi útgáfum; jarðhæðir og miðhæðir með rúmgóðri verönd/svölum, og þakíbúðir með þakverönd. Allar íbúðirnar eru með opnu skipulagi og borðstofu sem opnast út á verönd. Íbúðunum fylgir tengi fyrir loftkælingu, fullbúnir fataskápar, LED lýsing, geymsla og bílastæði í bílakjallara.
Kjarninn er alveg lokaður sem tryggir öryggi og einkalíf íbúa. Gott sameiginlegt svæðið er með stórri sundlaug fyrir börn og fullorðna með nuddi, falleg græn svæði með náttúrulegu grasi, bílakjallari og sólarsellur fyrir sameignlega svæðið sem lækkar sameiginlegan kostnað sameignarinnar.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum