Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Þessi eign er ekki í boði
REF 6804
Íbúðir staðsettar við Villamartín golfvöllinn þar sem öll nauðsynleg þjónusta er innan seilingar. Svæðið tilheyrir hinu vinsæla svæði Orihuela Costa. La Zenia strendurnar eru í einungis 5 mínútna fjarlægð með bíl og í næsta nágrenni eru aðrir þekktir golfvellir, svo sem Las Ramblas Golf og Golf Campoamor.
Um er að ræða fjögurra hæða byggingar með þakverönd. Allar eignir hafa 2 svefnherbergi, 2 baðherbergi, stórar svalir og þeim tilheyrir bílastæði í kjallara. Þakíbúðirnar búa yfir fallegu útsýni yfir hafið. Allar íbúðir eru klárar fyrir uppsetningu á loftkælingu, parket er á gólfum í stofu og svefnherbergjum, eldhúsi fylgja eldhústæki (helluborð, ísskápur, þvottavél og háfur). Gólfhiti er á baðherbergjum. Sameiginleg sundlaug og heitur pottur ásamt aðstöðu til íþróttaiðkana, búningsherbergjum og sauna er til staðar í kjarnanum.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Villamartin
Villamartín er íbúðahverfi við Orihuela Costa, byggt við golfvöllinn Villamartín. Völlinn hannaði P. Puttman og var hann vígður árið 1972. Mikil gróðursæld er við völlinn eftir öll þessi ár.
Fyrir þá sem vilja njóta lífsins í aðeins 5 km fjarlægð frá ströndinni, er Villamartín góður kostur, enda næg þjónusta í hverfinu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum