Íbúð á jarðhæð með 3 svefnherbergjum, garði og útsýni til hafs í Cala de Mijas

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

frá 68,295,500 kr
frá 455.000€

3

2

106.27 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4242165

Íbúðasamstæða í Cala de Mijas, frábær staðsetning með stórkostlegu útsýni yfir hafið og fjöllin. Samstæðan liggur við golfvöll og er í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð frá miðbæ Cala de Mijas, þar sem öll dagleg þægindi eru í boði, ásamt fallegum ströndum. Vegakerfi tengir Cala de Mijas við Marbella á 25 mínútum og Málaga og alþjóðaflugvöllinn á 45 mínútum.

Velja má milli íbúða á jarðhæð með 3 svefnherbergjum, eða þakíbúða með 2 svefnherbergjum. Íbúðir á jarðhæð hafa stóran garð en þakíbúðirnar koma með stórum veröndum með víðáttumiklu útsýni. Eignirnar, sem snúa til suðurs, eru byggðar í tröppugangi og hafa þannig stórbrotið og óhindrað útsýni yfir Miðjarðarhafið. Íbúðirnar eru með opinni hönnun og björtum innri rýmum sem tengjast útisvæðum fullkomlega. Gæði efna og frágangs eru frábær, með úrvali valmöguleika. Allar íbúðirnar eru með loftkælingu, eldhústækjum og bílastæði.

Samstæðan er lokuð, með einstaklega stóru garðsvæði, með göngustígum í gegnum allan kjarnann, tilvalið til að hlaupa eða fara í langar gönguferðir. Miðsvæði kjarnans samanstendur af stórri sameiginlegri sundlaug, með aðskildu svæði fyrir fullorðna og börn, og strandsvæði sem er tilvalið fyrir sólbað. Sameiginleg aðstaða felur einnig í sér heilsulind með vatnsnuddi, gufubaði, tyrknesku gufubaði og líkamsræktarstöð.
See more...

  • verönd
  • eigin garður
  • bílastæði
  • sameiginleg sundlaug
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

La Cala, heitir þéttbýli Mijas sem liggur við ströndina. La Cala er hefðbundið þorp sem í dag er miðpunktur 12 km langrar strandlengju. Við strendurnar eru glæsileg íbúðahverfi, hótel og fjöldinn allur af annars konar þjónustu. Á svæðinu má spila golf og tennis og stunda alls kyns vatnaíþróttir, svo sem köfun eða siglingar. Þá má auðvitað baða sig í sjónum eða liggja og sleikja sólina. 

Úr fortíð svæðisins standa eftir fjórir turnar sem voru hluti af varnarvirki andalúsísku strandlengjunnar. Þá hefur hafsbotninn við Mijas mikla vistfræðilega þýðingu en þar er mikil fjölbreytni í dýralífinu og fjöldi evrópskra, afríkanskra, Atlantshafs- og Miðjarðarhafstegunda lifa þar saman í sátt og samlyndi. 

  • 36 km
  • 4 km
  • 9 km
  • 2 km
  • 9 km
  • 0 km

Nánari upplýsingar um Mijas Costa

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.