Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada, Lo Romero Golf
REF 4672549
Ný glæsileg íbúabyggð við golfvöllinn Lo Romero Golf, í Pilar de la Horadada. Mjög vel staðsettur dvalarstaður, einungis 7 mínútur frá miðbænum, 12 mínútna fjarlægð frá stórkostlegu ströndunum í Tore de la Horadada og stutt í mikið úrval þjónustu, eins og matvörubúðir, verslanir, bari, veitingastaði, banka, apótek og heilsugæslu. Í bænum er einnig að finna tilkomumikinn íþróttavöll, tennisvelli og padel, marga knattspyrnuvelli, keppnissundlaug, frjálsíþrottabrautir og líkamsræktaraðstöðu. Flugvöllurinn í Murcia er í aðeins 40 mínútna fjarlægð og flugvöllurinn í Alicante í klukkutímafjarlægð. Fullkominn staður fyrir þau sem leita að íbúð fyrir fríið eða til að búa í allt árið um kring.
Í boði eru glæsileg einbýli með þremur svefnherbergjum, þremur baðherbergjum á tveimur hæðum, á 452 til 521m2 stórum lóðum. Á neðri hæð er opið, rúmgott rými með stofu, borðstofu og eldhúsi og stórum gluggum þaðan sem útgengt er í garðinn. Á hæðinni er einnig svefnherbergi með baðherbergi, þvottahúsi og gestasalerni. Á fyrstu hæð eru hin svefnherbergin, bæði með aðgang að svölum, auk tveggja baðherbergja, og er annað þeirra inn af svefnherbergi. Stórar svalir, að hluta til yfirbyggðar, einkasundlaugin og garðurinn gera að verkum að þetta er fullkominn staður til að njóta dásamlegs veðurfarsins á Costa Blanca.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada, Lo Romero Golf
Lo Romero Golf svæðið er yfir 1.25 milljón fermetra stórt og þar með er talinn 18 holu golfvöllur, par 72, með klúbbhúsi, æfingasvæði, íþrótta- og tómstundaaðstöðu, hóteli og verslunum.
Stórkostlegt útsýni yfir hafið, frábær staðsetning, aðeins 5 km frá fallegum ströndum Torre de la Horadada og hönnun svæðisins með breiðum götum og fallegum furutrjám, hafa gert þennan golfvöll og hverfið sem honum tilheyrir að einum vinsælasta stað á svæðinu síðan opnað var í janúar 2008.
Frábært framboð er á fasteignum á svæðinu, en einbýlishús af ýmsum gerðum ráða þar ríkjum.Stórkostlegt útsýni yfir hafið, frábær staðsetning, aðeins 5 km frá fallegum ströndum Torre de la Horadada og hönnun svæðisins með breiðum götum og fallegum furutrjám, hafa gert þennan golfvöll og hverfið sem honum tilheyrir að einum vinsælasta stað á svæðinu síðan opnað var í Janúar 2008.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum