Lúxuseinbýli með ótrúlegu útsýni yfir hafið og einstakri sundlaug í Cumbre del Sol

Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol

frá 783,672,100 kr
frá 5.221.000€

5

6

1401.00 m2

2122.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4681886

Lúxuseinbýli með stórkostlegu útsýni yfir hafið í Cumbre del Sol. Einstök íbúabyggð á milli borganna Jávea og Moraira, á Costa Blanca Norte. Fullkomin staðsetning í aðeins 5 mínútna fjarlægð frá Playa Moraig og fallegu Calas. Íbúabyggðin er hluti af afgirtu hverfi með stýrðum aðgangi og þar er að finna ýmis konar þjónustu, eins og verslunarsvæði með matvöruverslun, hárgreiðslustofu, apótek, bari og veitingastaði og alþjóðlegan framhaldsskóla. Fyrir íþróttaunnendur er mikið úrval íþróttaaðstaða eins og tennis- og padelvellir, reiðvöllur og ýmsar gönguleiðir. Þökk sé framúrskarandi vegakerfi er hægt að komast fljótt og örugglega á nálæga ferðamannastaði, eins og Moraira sem er í 10 mínútna fjarlægð, Jávea í 15 mínútna fjarlægð og Calpe í 30 mínútna fjarlægð. Flugvöllurinn í Alicante er í um það bil klukkutímafjarlægð. 

Í boði er glæsilegt einbýli á 2.000 m2 lóð, á tveimur hæðum, með fimm svefnherbergjum, sex baðherbergjum og kjallara sem hægt er að hann eftir eigin höfði. Lyfta er í húsinu sem tengir saman hæðirnar þrjár.

Einn af helstu kostum þessarar einstöku eignar er stórkostlegt útsýni yfir hafið, yfir fallega ströndina og sjóndeildarhring Calpe, með hinu óviðjafnanlega Peñón de Ifach. Jarðhæðin samanstendur af opnu, rúmgóðu rými með mjög stórri stofu/borðstofu, einkar hentug fyrir stóra fögnuði, og nútímalegu eldhúsi með eyju og  morgunverðarstofu. Tvöföld lofthæð og háir gluggar gera að verkum að hæðin er einstaklega björt og rúmgóð. Á þessari hæð er einnig þvottahús og tvö gestasalerni, annað þeirra með aðgang að verönd. 

Utandyra er hægt er að útbúa mörg ólík svæði á mismunandi pöllum, eins og útiborðstofu eða stofu við hlið dásamlegrar sundlaugarinnar. 

Fjögur af fimm svefnherbergjum eru á fyrstu hæð, öll eru þau rúmgóð, með baðherbergi og svölum. Stærsta svefnherbergið er með fataherbergi, stórum svölum og sérbaðherbergi þaðan sem hægt er að njóta stórkostlegs útsýnis yfir hafið. Á þessari hæð eru einnig fleiri rými sem hægt er að nýta sem leik- eða vinnusvæði, skrifstofu eða aðra stofu.

Úr kjallaranum er einnig útgengt á yfirbyggðar svalir sem skipt er upp í nokkur svæði, þar er einnig svefnherbergi með baðherbergi, annað baðherbergi, gestasalerni og rými sem hægt er að hanna eftir eigin höfði, til dæmis innisundlaug, gestaíbúð, kvikmyndasal, líkamsræktarsal eða hvað það sem eigandi ákveður. 

Eignin er byggð úr fyrsta flokks efni, eldhúsið er fullbúið með hágæða heimilistækjum, loftvarmakerfi, hita í gólfum, loftræstingu um stokk með ólíkum hitastillingum fyrir mismunandi herbergi, rafknúnum gardínum, innri og yrti lýsingu, viðvörunarkerfi með vídeói, snjalltækjum, rafknúnu hliði fyrir ökutæki, ljósspennukerfi fyrir húsnæði sem nota 5,5 kw einkasundlaug, vökvunarkerfi fyrir garðinn og yfirbyggt bílastæði fyrir þrjú ökutæki og hleðslustöð fyrir rafbíla. Mögulegt er að stækka við íbúðina með öðru svefnherbergi. 

Einstakt lúxushús með undurfögru útsýni yfir hafið, fullkomið til að njóta lífsins við Miðjarðarhafið.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • yfirbyggt bílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Norður, Marina Alta, Cumbre del Sol

Cumbre del Sol tilheyrir bæjarfélaginu Benitachell, sem liggur milli tveggja vel þekktra bæja, Jávea og Moraira, og er í aðeins 12 km fjarlægð frá Calpe, 10 km frá AP7 hraðbrautinni, 30 km frá Benidorm, 75 km frá Alicante og 102 km frá Valencia.

Magnaðir klettar, sem sumir eru yfir 100 metra háir bjóða íbúum svæðisins uppá stórkostlegt útsýni yfir hafið frá nokkrum útsýnisstöðum umkringdum vernduðum svæðum eins og þjóðgarðinum Natural Park of Granadella, þar sem ganga má í hæðunum yfir klettana og skoða hellana

Strandlengjan við Benitachell er tilvalin fyrir þá sem hafa gaman af köfun og öðrum vatnaíþróttum. Frá Cumbre del Sol er beinn aðgangur að þremur fallegustu klettavíkum héraðsins, Cala Moraig, Cala de Los Testos, og Cala del Llebeig.

Nálægð svæðisins við bæina Jávea og Moraira gerir það að tilvöldum stað fyrir þá sem leita að eign við Costa Blanca í gríðarfallegri náttúru þar sem að auki má finna góða þjónustu. Cumbre del Sol er þannig einstök staðsetning.

Svæðið teygir sig eftir strandlengjunni um 3.700.000 m2, og skiptist í nokkur íbúðahverfi með einbýlum, raðhúsum og íbúðum sem öll eru umkringd gróðursælum reitum og Miðjarðarhafið er skammt undan.

  • 953 km
  • 69 km
  • 70 km
  • 1 km
  • 68 km
  • 32 km

Nánari upplýsingar um Cumbre del Sol

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.