TILBÚIÐ TIL AFHENDINGAR! Lúxuseinbýli með ótrúlegu útsýni yfir hafið í grennd við Fuengirola

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola

frá 746,747,500 kr
frá 4.975.000€

5

3

846.00 m2

2813.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4691187

Lúxusvilla sem hægt er að flytja strax inn í og með ótrúlegu útsýni yfir hafið, í Fuengirola.  Eignin tilheyrir afgirtum dvalarstað aðeins átta mínútur frá ströndinni og fylgir aðgangur að fyrsta flokks þjónustu og aðstöðu, eins og dyravörslu, íþróttaklúbbi, afslöppun í spa eða á strandarklúbbnum. Umhverfis Mijas Costa er að finna úrval veitingastaða, við ströndina sjálfa og einnig inn í miðbænum, en þetta er dæmigert þorp sem býr enn yfir töfrum hvítu þorpanna í Andalúsíu. Staðsetningin er fullkomin fyrir golfunnendur en einnig annarra íþrótta, mikið úrval hasaríþrótta er á staðnum, til dæmis svifflug, en einnig allskonar vatnaíþróttir. Húsið er á rólegum stað en auðvelt er að komast að því, það er vel tengt hraðbrautinni svo hægt er að komast hratt og örugglega til annarra mikilvægra borga eins og Puerto Banús og Marbella á hálftíma og á flugvöllinn í Malaga á einungis 20 mínútum.

Einstakt einbýli í nútímalegum stíl, upprunaleg en þó nýmóðins hönnun, og er dagsljósið nýtt til hins ýtrasta. Einbýlið er á 2.813 m2 lóð, á tveimur hæðum, með 5 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Út um stóra glugga er hægt að njóta stórkostlegs útsýnis yfir hafið, úr öllum herbergjum hússins. 

Fyrir utan gestaherbergið sem er á efri hæð, eru öll herbergin á efri hæðinni, sem veitir aukin þægindi. Rúmgott, opið dagrýmið samanstendur af nútímalegu eldhúsi, borðstofu og stofu með tvöfaldri lofthæð. Stærsta svefnherbergið er afar rúmgott, með sérbaðherbergi og baðkari með nuddi. Á hæðinni eru einnig 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi og þvottahús. Útgengt er úr öllum herbergjum. Útisvæðið er stórkostlegt, fullkomið til að njóta veðursins á Costa del Sol, með stórri sundlaug, yfirbyggðum sem og opnum svölum, grillsvæði og undurfögrum Miðjarðarhafsgarði. 

Eignin er byggð úr fyrsta flokks efni, eldhúsið er fullbúið með hágæða heimilistækjum, hita í gólfum, loftræstingu um stokk (hiti/kuldi), snjallkerfi, viðvörunarkerfi, leikfimisal, nuddpotti, körfuboltavelli, 75 m2 einkasundlaug og bílskúr fyrir tvö ökutæki.

Eign sem býður upp á einstaka friðsæld og kyrrð, með allt það sem þarf til að lifa lúxuslífi við Miðjarðarhafið.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • afgirt bílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Fuengirola

Fuengirola er borg sem angar af Andalúsíu og býður uppá víðfeðma strandlengju sem skreytt er stórkostlegum ströndum. Þessi borg í Málaga héraði hefur um langt skeið verið eftirsóttur ferðamannastaður og býður uppá fjölbreytt úrval þjónustu og innviða, svo sem golfvelli, hestabúgarða, skemmtigarða, hótel og veitingastaði, svo ekki sé minnst á menningarhefðir og hátíðir. Menningarlegir viðburðir í Fuengirola, ásamt vinsælum hátíðahöldum, teygja sig yfir árið eins og það leggur sig og endurspegla opið og alúðlegt viðmót innfæddra.  

Íbúafjöldi í borginni er um 80.000 manns, sem gerir hana að fimmta fjölmennasta sveitarfélagi Málaga, á eftir höfuðborginni sjálfri, Marbella, Vélez-Málaga og Mijas.

Fuengirola var stofnuð af Föníkumönnum og um hana fóru Rómverjar, Býsantíumenn, Vestgotar og Múslímar ásamt öðrum þjóðum, þar til hún var opinberlega innlimuð í konungsríki Kastilíu, árið 1485. Í dag er Fuengirola mikilvægur ferðamannastaður sem hýsir um 250.000 manns yfir sumartímann og hagkerfi borgarinnar veltur á ferðamannaþjónustu. 

  • 18 km
  • 5 km
  • 5 km
  • 2 km
  • 4 km
  • 4 km

Nánari upplýsingar um Fuengirola

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.