Nútímalegt einbýlishús á einni hæð með sundlaug í Antequera

Costa del Sol, Málaga, Antequera

Þessi eign er ekki í boði


2

2

129.00 m2

516.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4751780

Nýr einbýlishúsakjarni í Antequera, sem er vel staðsett borg í nálægð við Malaga, Granada, Cordoba og Sevilla. Húsin eru innan Antequera Golf Resort en þar er að finna 5 stjörnu hótel í mannvirki frá 16. öld. Hótelið býður upp á mikla þjónustu; veitingastaði, fullbúna heilsulind þar sem hægt er að panta sér nudd og líkams- og andlitsmeðferðir, 18 holu golfvöll, fjölda gönguleiða, hjóla – og hestastíga, leikvelli og fótboltavelli. Sjálf Antequera borgin býður að auki upp á alla mögulega þjónustu, s.s. veitingastaði, sjúkrahús, verslanir, banka og matvörubúðir. Þar er að finna ríka arfleifð fornleifa og arkitektúrs, svo sem forn mannvirki úr stórum steinum sem eru við Menga, Viera og El Romeral, sem og kirkjur, klaustur og hallir auk Fornleifasafns Los Dólmenes, náttúruparadísina El Torcal og La Peña de los Enamorados, sem er á heimsminjaskrá Unesco. Svæðið er afar vel tengt hvað varðar samgöngur, en auk hraðbrauta eru 4 lestarstöðvar sem tengjast svæðinu, þar af ein hraðlestarstöð (AVE high speed train), sem gerir það að verkum að afar auðvelt er að komast til annarra borga á Spáni, s.s. Madrid, Zaragoza og Barcelona. Þá er flugvöllurinn í Malaga í einungis 45 mínútna fjarlægð.

Nútímaleg einbýlishús þar sem eldhús, stofa og borðstofa eru í einu opnu rými sem opnast út á verönd með stórkostlegu útsýni af La Vega de Antequera. Stórt útisvæðið inniheldur verandir, einkasundlaug og garð, kjörið til að njóta veðurblíðunnar. Húsin eru fáanleg í mismunandi útgáfum; einbýli á einni hæð með 2 eða 3 svefnherbergjum, eða einbýli á 3 hæðum með 4 svefnherbergjum. Hverju húsi fylgja tvö bílastæði.

Aukalega er hægt að fá aðstoð innanhússhönnuðar til að hanna húsin að vild hvers og eins, þ.e. ef byggingarstig leyfir. Þá er í boði að byggja auka hæð við húsin sem eru með 3 svefnherbergjum og bæta því fjórða við, sem og baðherbergi og verönd. Við húsin sem eru með 4 svefnherbergjum er hægt að bæta skrifstofu við efstu hæðina.

Allur kjarninn verður með hámarks öryggisgæslu allan sólarhringinn, auk þess verður í boði að kaupa þjónustu s.s. hreingerningar, viðhald, garðyrkjuþjónustu og útleiguþjónustu.

Um er að ræða hús í hjarta Andalúsíu sem eru bæði frábær fjárfesting sem annað heimili jafnt sem heimili allan ársins hring.

See more...

  • einkasundlaug
  • yfirbyggð verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Málaga, Antequera

Sveitarfélagið Antequera er gríðarstórt (810.39 km2), það stærsta í Malaga og eitt það stærsta á Spáni. Íbúafjöldi er um 42.400 sem dreifist á nokkur svæði innan sveitarfélagsins. Þó að það sé landfræðilega nálægt sjó þá er það ekki eins og flestir sjávarbæir þar sem stór fjallgarður er á milli sjávar og íbúðabyggðar. Loftslagið er milt og svipar til meginlandsloftslags.

Þar er að finna ríka arfleifð fornleifa og arkitektúrs, svo sem forn mannvirki úr stórum steinum sem eru við Menga, Viera og El Romeral, sem og kirkjur, klaustur og hallir frá mismunandi tímabilum og stílum.  Umhverfislega er náttúruparadísin El Torcal afar tilkomumikil hvað varðar gróður og landslag en þar er að finna eitt flottasta kalksteinasvæði Evrópu.

  • 65 km
  • 38 km
  • 37 km
  • 37 km
  • 35 km
  • 0 km

Nánari upplýsingar um Antequera

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.