Íbúðir með sjávarútsýni í Rincon de la Victoria

Costa del Sol, La Axarquía, Rincón de la Victoria

frá 76,551,000 kr
frá 510.000€

2

2

103.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4827202

Nýr íbúðakjarni með nútímalegum íbúðum í Rincon de la Victoria, íbúðahverfi í Malaga.  Kjörin staðsetning, innan við 10 mínútum frá ströndinni og miðbænum sem býður upp á alls kyns þjónustu, s.s. skóla, matvöruverslanir, apótek, banka, verslanir og íþróttaleikvanga. Svæðið hentar einnig vel til útivistar, s.s. golf, hlaup, hjólreiðar, fjallgöngur og ýmis vatnasport.  Svæðið er vel tengt vegakerfinu, bæði við A-7 hraðbrautina og N-340, sem gerir það þægilegt að fara á helstu ferðamannastaði í nágreninu, s.s. til Torremolinos og Benalmádena á um 40-45 mínútum. Borgin Malaga, með AVE stöðinni og alþjóðaflugvellinum, er í 30 mínútna fjarlægð þannig að svæðið er vel staðsett fyrir þá sem hyggjast setjast þar að varanlega sem og þá sem vilja eiga athvarf í sólinni.

Kjarninn býður upp á íbúðir með 2 eða 3 svefnherbergjum, sem eru fáanlegar í ýmsum útgáfum; jarðhæðir og miðhæðir með stórum veröndum, og þakíbúðir með þakverönd. Allar íbúðirnar snúa í suð-vestur, eru bjartar og bjóða upp á stórkostlegt útsýni yfir miðjarðarhafið. Stofan, borðstofan, og eldhúsið, með búrherbergi, eru í opnu rými sem opnast út á verönd. Öll svefnherbergin eru með aðgengi út á verönd og hjónaherbergið er með baðherbergi inn af.

Íbúðunum fylgir fullbúið eldhús með eldhústækjum, tvöfalt gler, gólfhiti á öllum gólfum, kynding með lágmarks orkunýtingu, loftkæling, bílastæði og geymsla. Allar verandir eru með vatnstengi, rafmagns- og sjónvarpstengi, sem og útilýsingu. Þakíbúðirnar eru einnig með yfirbyggða pergólu.

Kjarninn er með sameiginlega sundlaug, eina fyrir fullorðna og aðra fyrir börn, auk grænna svæða sem eru kjörin til þess að slaka á og njóta loftlagsins á Costa del Sol.

See more...

  • verönd
  • bílastæði
  • sameiginleg sundlaug
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, La Axarquía, Rincón de la Victoria

Rincón de la Victoria er ferðamannastaður við Costa del Sol, þekktur fyrir sjávarhella og strendur. Sökum nálægðar við borg Málaga (sem liggur í 16 km fjarlægð um hraðbrautina), hefur staðurinn orðið gististaður fjöldamargra þó að enn megi njóta karakters fiskiþorpsins. 

Rincón de la Victoria tilheyrir og er samþætt höfuðborgarsvæði Málaga. Með íbúafjöldann 49.790 er staðurinn níunda fjölmennasta sveitarfélag héraðsins og annað í röðinni á svæðinu sjálfu, á eftir Vélez-Málaga.

  • 33 km
  • 8 km
  • 15 km
  • 1 km
  • 12 km
  • 1 km

Nánari upplýsingar um Rincón de la Victoria

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.