Þakíbúðir við strönd með þakverönd og frábæru sjávarútsýni í La Mata

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, La Mata

frá 145,791,000 kr
frá 970.000€

3

2

108.59 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4955995

Strandíbúðir í La Mata, á Costa Blanca. Frábær staðsetning, með stórkostlegu sjávarútsýni auk mikillar þjónustu í nálægð, s.s. búðir, banka, matvöruverslanir, heilsugæslu, bari og veitingastaði. La Mata er einnig með vikulegan götumarkað þar sem hægt er að kaupa ýmsar vörur, s.s. ávexti, grænmeti, fatnað, skó og fleira. Í 15 km radíus við íbúðirnar eru að finna fjölda tækifæra til afþreyingu, þar á meðal eru 5 golfvellir, vatnsrennibrautagarður, göngu- og hjólastígar umhverfis saltlónið í La Mata náttúrugarðinum, auk vatnasports við strendurnar. Svæðið er nálægt Torrevieja og Guardamar en það tekur eingöngu um 10 mínútur að aka þangað en þar er að finna ýmsa þjónustu til viðbótar. Vegakerfið er afar einfalt og tekur það um 45 mínútur að aka til miðbæjar Alicante og um 35 mínútur á flugvöllinn í Alicante. Til flugvallarins í Murcia er um klukkustund. Frábær staðsetning bæði sem orlofsíbúð og varanlegt heimili.

Síðustu íbúðirnar sem eru eftir eru með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og stórri verönd. Þakíbúðirnar eru með stórri þakverönd. Allar íbúðirnar eru með opnu skipulagi og aðgengi út á verönd úr stofu/borðstofu þar sem stórkostlegt sjávarútsýnið blasir við. Hjónasvítan er með baðherbergi innaf og aðgengi út á verönd. Íbúðunum fylgja fullbúið eldhús, tengi fyrir loftkælingu, gólfhiti í stofu og baðherbergjum og Smart Home kerfi. Þakíbúðunum fylgir útieldhús og heitur pottur á þakveröndinni.

Aukalega er hægt að kaupa bílastæði í sameiginlegum bílakjallara með tengi fyrir rafbíla. Í húsinu verður bílalyfta sem á að tryggja þægilega og örugga lagningu bíla.

Sameiginlega svæðið er á þaki mannvirkisins með stórum garði, heitum potti, tveimur veröndum þar sem hægt er að njóta sólarinnar allan daginn og útsýnisins yfir saltlónið í La Mata náttúrgarðinum, svo ekki sé minnst á sólarlagið.

 

See more...

  • verönd
  • þakverönd
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, La Mata

La Mata er lítið þorp sem heyrir undir Torrevieja. La Mata býður upp á 2ja km langar strendur með fínum sandi og sjarma Miðjarðarhafsþorps ásamt miklu úrvali af þjónustu. Fullkomin blanda hefða og nútímaþæginda.

Fullkominn staður til að njóta hafsins án þrengsla stórborgarinnar. Nýbyggingarnar á svæðinu eru íbúðir og raðhús í fyrsta flokki, í minna en 300 m. fjarlægð frá ströndinni og á mjög samkeppnishæfum verðum. Skoðið fasteignaframboð okkar við ströndina í La

  • 39 km
  • 17 km
  • 22 km
  • 0 km
  • 9 km
  • 13 km

Nánari upplýsingar um La Mata

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.