Lúxus raðhús með 5 svefnherbergjum, einkasundlaug og sjávarútsýni, 700m frá ströndinni í Alicante

Costa Blanca Norður, L'Alacantí, Alicante

frá 199,633,000 kr
frá 1.330.000€

5

4

215.55 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5451413

Einstök raðhús, aðeins 700m frá Las Huertas ströndinni í Alicante sem er þekkt svæði í útjaðri Alicante, með fjölbreyttri þjónustu og þægindum, eins og verslunarmiðstöðvum, skólum, íþróttamannvirkjum og menningarsvæðum. Miðbær Alicante er í innan við 20 mínútna akstursfjarlægð, með háhraðalestarstöð, og í aðeins 30 mínútna fjarlægð frá flugvellinum í Alicante.

Nútímaleg einbýlishús með 5 svefnherbergjum og 4 baðherbergjum, á þremur hæðum. Aðalhæðin er með opna setustofu og borðkrók, með tvöfaldri lofthæð og nútímalegu eldhúsi. Stórir gluggar í setustofu og eldhúsi opnast út á yfirbyggða verönd, að hluta, og sundlaugarsvæðði. Á hæðinni er hjónaherbergi, baðherbergi, gestasalerni og þvottahús. Á annarri hæð eru 2 svefnherbergi og sameiginlegt baðherbergi, auk hjónaherbergis með sér baðherbergi og verönd. Síðasta svefnherbergið og baðherbergið eru á þriðju hæð, með auka verönd með fallegu sjávarútsýni. Aukalega er hægt að setja upp nuddpott á þessari verönd.

Hægt er að sérsníða heimilið að vild, með breyttu efnisvali og frágangi. Að auki munu öll heimilin innihalda loftræstikerfi, innfelldum eldhústækjum og vínkæli, gólfhita, arni, rafmagnsgardínum í setustofu, eldhúsi og svefnherbergjum, LED lýsingu, snjallheimakerfi með farsímaappi, lyftu sem tengir allar hæðir, einkasundlaug, garð með gervigrasi og hellulögn, tvö bílastæði í bílakjallara með aðgengi að húsinu. Öðru bílastæðinu fylgir foruppsetning fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla.

Kjarninn er algjörlega lokaður með fjarstýrðum aðgangi, sem tryggir öryggi og næði fyrir alla íbúa. Sameignin  inniheldur stóra „infinity“sundlaug og nuddpott, umkringd sólbaðsverönd og grænum svæðum. Kjarninn var  hannaður með virðingu fyrir umhverfinu og til að draga úr losun koltvísýrings.Ráðstafanir sem gerðar voru til að ná þessu markmiði eru t.d. sólarrafhlöður, foruppsetning fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla í hverju stæði, einka- og sameignar sundlaugar með saltvatni og innlendar plöntur og tré í görðunum sem krefjast minni áveitu.

See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Blanca Norður, L'Alacantí, Alicante

Alicante er höfuðborg héraðsins, staðsett á miðri Costa Blanca og skilur þannig milli norður og suður Costa Blanca.

Þéttbýliskjarninn er fullkominn fyrir fólk sem kýs að búa í stórborg, með allri þeirri þjónustu sem því fylgir. Á þessu svæði einkenna fasteignaúrvalið eingöngu fyrsta flokks íbúðir við ströndina eða mjög nálægt frægustu strönd borgarinnar, Postiguet-ströndinni. Fjær þéttbýliskjarnanum, en þó við ströndina, er að finna margskonar íbúðasvæði eins og La Albufereta, Cabo Huertas og San Juan ströndina, þar sem húsagerðirnar eru fjölbreyttari. Hér bjóðum við upp á stórkostlegt val einbýla, raðhúsa og íbúða. Hér má sjá fasteignirnar í Alicante.

  • 13 km
  • 6 km
  • 7 km
  • 1 km
  • 6 km
  • 32 km

Nánari upplýsingar um Alicante

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.