Costa Blanca Norður, L'Alacantí, Castalla
Þessi eign er ekki í boði
REF 117055
Nýr íbúðakjarni með einbýlishúsum með einkasundlaug í Castalla. Gríðarfalleg náttúra með fjallasýn og miðjarðarhafsskóglendi innarlega í Alicante héraði. Tilvalið fyrir þá sem leita að heimili á Spáni í rólegu umhverfi en samt sem áður með alla þjónustu innan seilingar. Castalla þorp er í 5 mínútna fjarlægð frá byggðinni og Alicante borg í 30 mínútna fjarlægð.
Í boði eru ólíkar eignir; 2ja eða 3ja svefnherbergja hús á einni hæð, byggð á 400 m2 lóðum. Eða hús með 4 svefnherbergjum og 4 baðherbergjum. Öll húsin hafa rúmgóða stofu, nýtískulegt eldhús og stórar þaksvalir. Að auki fylgir sundlaug með 4ra svefnherbergja húsinu.
Costa Blanca Norður, L'Alacantí, Castalla
Castalla er einstaklega vel staðsett inni í landi í Alicante-héraði. Kyrrð og náttúra, ásamt fjölda tómstunda og mögulegra skoðunarferða í nágrenninu. Þökk sé nálægð við AP-7 hraðbrautina eru góðar samgöngur við meginborgir Costa Blanca. Í minna en 30 mín. fjarlægð er Alicante-borg og hinar fögru strandir í El Campello. Meginaðdráttarafl ferðalanga er gamla virkisborgin í Castalla og ævintýralegur kastalinn.
Fasteignaúrvalið í Castalla samanstendur aðallega af gæða einbýlum á góðu verði. Einstakur kostur fyrir þá sem leita að rólegum stað í fjallalandslagi, þó án þess að sleppa nálægð við stórar borgir og sjó. Skoðið fasteignaframboðið í Castalla
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum