Costa Blanca Norður, Marina Alta, Benissa
REF 4673543
Einbýli með einkasundlaug, í einstöku hverfi í Benissa, á La Costa Blanca Norte. Benissa er 5 km frá ströndinni, á milli Calpe og Moraira, sem eru í aðeins tíu mínútna akstursfjarlægð. Í þessum borgum er að finna hverskyns nauðsynlega þjónustu frá degi til dags, og einnig fyrirtaksúrval veitingastaða. Eignin er staðsett á rólegu svæði, umkringd náttúru og aðeins í nokkurra mínútna fjarlægð frá ströndunum La Fustera og Las Calas de Baladrar, Llobella og Advocat. Staðsetningin býður upp á iðkun ýmissa íþrótta, eins og göngur, reiðmennsku, vatnaíþróttir ofl. Eignin er einnig mjög vel tengd vegakerfinu, eins og AP-7 og N-332, og hægt er að komast hratt og auðveldlega að stöðum eins og Benidorm á hálftíma og Alicante á klukkutíma.
Fallegt einbýli í Miðjarðarhafsstíl, á einni hæð með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, á 800 m2 lóð. Íbúðin er haganlega hönnuð, með stráþaki og stórum gluggum og opnu dagrými þaðan sem útgengt er í garðinn. Dásamlegt útisvæði sem er fullkominn hvíldarstaður, með stórum svölum, grillsvæði, einkasundlaug og fallegum garði. Svefnrýmið er með þremur svefnherbergjum, það stærsta með sérbaðherbergi, auk sameiginlegs baðs og rúmgóðu þvottahúsi.
Einstök eign byggð úr fyrsta flokks efni, með eldhús fullútbúið heimilistækjum, loftræstikerfi um stokk, hita í öllum gólfum, fjarstýrðum myndsíma við hlið, sundlaug með hita, garði með sjálfvirkri vökvun og bílastæði innan lóðar.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Benissa
Á milli hafs og fjalla er Benissa að finna, fallegt þorp á norður Costa Blanca en á svæðinu eru paradísarvíkur með kristaltæru vatni, fullkomnar fyrir íþróttir eins og köfun, seglbretti eða seglbáta. Einnig er hægt að njóta gönguferða í Benissa sem er umkringt fjöllum og hlíðum.
Benissa er talinn vera einn af þessum útvöldu áfangastöðum við Miðjarðarhafsströndina og fasteignaúrvalið ber sannarlega merki þess, því einkennandi eru lúxuseinbýli. Skoðið fasteignaframboðið í Benissa.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum