Costa Blanca Norður, Marina Alta, Benissa
Þessi eign er ekki í boði
REF 4778908
Nútímlegt einbýlishús á friðsælum stað í Benissa með stórkostlegu sjávarútsýni og einungis í rúmlega 1km fjarlægð frá hinni stórkostlegu La Fustera strönd. Nágrannabæirr Benissa; Calpe og Moraira bjóða upp á úrval af alls kyns þjónustu, s.s. matvöruverslanir, búðir og flotta veitingastaði. Svæðið býður einnig upp ýmis konar hreyfisport, s.s. golf, siglingar, vistvæna gönguleið frá ströndinni til Calpe, auk hestaferða. Staðsetningin er afar góð, mikil náttúra allt um kring, stutt að keyra á ströndina og gott aðgengi að öllum helstu nútíma þægindum.
Tveggja hæða einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, byggð á 725 m2 lóð. Miðhæðin er rúmgóð og er stofan, borðstofan og eldhúsið í opnu rými. Eyja er í eldhúsinu. Gólfsíðir gluggar eru á miðhæðinni sem hægt er að opna út á glæsilegt útisvæðið. Á hæðinni er einnig tvöfalt svefnherbergi með baðherbergi, gestasalerni og þvottahús. Á jarðhæðinni eru 2 svefnherbergi til viðbótar, bæði með fataherbergi og baðherbergi inn af, og svalahurð sem opnast út á verönd með stórkostlegu sjávarútsýni.
Útisvæðið er með stórri verönd, með aðstöðu til að grilla. Kjörið svæði til að njóta sólarinnar á Costa Blanca með fjölskyldu og vinum. Veröndin er með gott svæði til að slaka á og baða sig í sólinni við sundlaugina og er öll lóðin umkringd furutrjám sem tryggir gott næði, en skemmir ekki fyrir útsýninu yfir Miðjarðahafið. Lóðin er einnig með yfirbyggt svæði fyrir tvo bíla.
Húsið verður byggt með úrvals byggingarefnum og innréttingum, og er með loftkælingu, gólfhita á öllum gólfum eldhústækjum, rafknúnar gardínur, innbyggða fataskápa, inni – og útilýsingu, tengi fyrir örygisskerfi, einkasundlaug með tengingu fyrir dælubúnað, vökvunarkerfi á lóð, og bílastæði.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Benissa
Á milli hafs og fjalla er Benissa að finna, fallegt þorp á norður Costa Blanca en á svæðinu eru paradísarvíkur með kristaltæru vatni, fullkomnar fyrir íþróttir eins og köfun, seglbretti eða seglbáta. Einnig er hægt að njóta gönguferða í Benissa sem er umkringt fjöllum og hlíðum.
Benissa er talinn vera einn af þessum útvöldu áfangastöðum við Miðjarðarhafsströndina og fasteignaúrvalið ber sannarlega merki þess, því einkennandi eru lúxuseinbýli. Skoðið fasteignaframboðið í Benissa.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum