Costa Blanca Norður, Marina Baja, Polop-La Nucía
Þessi eign er ekki í boði
REF 4129379
Nýr húsakjarni á svæði milli Miðjarðarhafsins og fallegra fjalla við norður Costa Blanca. Tilvalin staðsetning fyrir dvöl í fríum eða til varanlegrar búsetu, nálægt ströndinni og fjölbreyttri þjónustu sem í boði er allt árið um kring, eins og matvöruverslunum, verslunum og alþjóðlegum skólum. Góð vegatenging er til Benidorm sem er í 15 mínútna fjarlægð, sem og Alicante og flugvallarins sem er í 50 mínútna fjarlægð.
Parhús á tveimur hæðum, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Jarðhæðin er með opnu alrými sem sameinar eldhús, borðstofu og setustofu með útgengi út á verönd og sundlaugarsvæði. Á þessari hæð er einnig svefnherbergi og baðherbergi. Á efri hæð eru 2 en-suite svefnherbergi og verönd, önnur þeirra með fallegu sjávarútsýni. Gegn aukakostnaði má bæta við 36m2 þakverönd.
Frágangur er í hæsta gæðaflokki og felur í sér rafmagnsgluggahlera, gólfhita á baðherbergjum, foruppsetningu fyrir loftkælingu, vatnsnuddsúlu á aðalbaðherbergi, sólarrafhlöður fyrir heitt vatn og rafmagn og bílastæði.
Í takmarkaðan tíma og sem kynningartilboð er inni- og útilýsing, sturtugler á baðherbergjum og eldhústæki innifalin í verðinu.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Polop-La Nucía
Polop er lítið þorp í Alicante-héraði í um 20 mín. fjarlægð frá stöndinni og Benidorm.
Fyrir þá sem leita að fasteign á Costa Blanca, á rólegum stað og í náttúrulegu umhverfi, en um leið stutt frá allri þjónustu, er Polop fullkominn kostur. Hér má sjá fasteignir í Polop:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum