Costa Blanca Norður, Marina Alta, Benissa
Þessi eign er ekki í boði
REF 126595
Glæsilegur kjarni af 6 einbýlishúsum í Benissa, 1 km frá sjónum, 5 km frá Calpe og 6 km frá Moraira. Forréttindastaðsetning við norður Costa Blanca þar sem njóta má fallegs útsýnis til fjalla og stórkostlegra stranda á svæðinu.
Boðið er uppá nokkrar tegundir húsa, með mismunandi skipulagi og frágangi, byggð á lóðum frá 765-942 m2. Framúrskarandi hönnun og gæði og húsunum fylgir 12x3,5 metra sundlaug og loftkæling.
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Benissa
Á milli hafs og fjalla er Benissa að finna, fallegt þorp á norður Costa Blanca en á svæðinu eru paradísarvíkur með kristaltæru vatni, fullkomnar fyrir íþróttir eins og köfun, seglbretti eða seglbáta. Einnig er hægt að njóta gönguferða í Benissa sem er umkringt fjöllum og hlíðum.
Benissa er talinn vera einn af þessum útvöldu áfangastöðum við Miðjarðarhafsströndina og fasteignaúrvalið ber sannarlega merki þess, því einkennandi eru lúxuseinbýli. Skoðið fasteignaframboðið í Benissa.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum