Costa Blanca Suður, Bajo Vinalopó, Elche, Arenales del Sol
Þessi eign er ekki í boði
REF 124617
Íbúðir um 500 metrum frá ströndinni í Arenales del Sol. Framúrskarandi staðsetning og mjög aðlaðandi verð en í boði eru íbúðir með 2 og 3 svefnherbergjum og stórri verönd eða frá 14 til 60 m2. Íbúðir með 2 svefnherbergjum og 1 eða 2 baðherbergjum eru ýmist á jarðhæð, með stórum garði, á miðhæð eða á efstu hæð með þakverönd. Eignir með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum eru á efri hæðum með stórri verönd og/eða þakverönd. Sameiginleg sundlaug er í kjarnanum með aðskildum svæðum; einu sem ætlað er fullorðnum og öðru fyrir börnin. Þar eru ennfremur heitir pottar fyrir 6-8 manns og stórir garðar. Bílastæði í bílageymslu í kjallara er innifalið í verði.
Costa Blanca Suður, Bajo Vinalopó, Elche, Arenales del Sol
Íbúðabyggðin við Arenales del Sol og aðliggjandi strönd hefur til margra ára verið eftirsóttur áfangastaður spænskra ferðalanga.
Ströndin við Arenales del Sol er um einn og hálfur km. að lengd, og því ein af þeim lengri við Costa Blanca. Við sjóinn rísa háar byggingar með stórkostlegu útsýni sem umkringdar eru margskonar þjónustu. Stór hluti fasteignaúrvalsins í Arenales del Sol samanstendur af tveggja og þriggja svefnherbergja íbúðum í innan við 300 m. fjarlægð frá ströndinni. Þessar fasteignir eru mjög eftirsóttar af þeim sem kjósa að njóta frítímans við ströndina. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Arenales del Sol.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum