Costa Blanca Suður, Bajo Vinalopó, Elche, Arenales del Sol
Þessi eign er ekki í boði
REF 237529
Nýr íbúðakjarni, aðeins 350 metra frá ströndinni Arenales del Sol, í fallegu náttúrulegu umhverfi þar sem gott framboð er af þjónustu og góðar samgönguleiðir til næstu bæja. Í boði eru íbúðir með garði, miðhæðir með svölum og efstu hæðir með þakverönd. Allar eignirnar samanstanda af 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, opinni stofu/borðstofu, nútíma eldhúsi og verönd. Í kjarnanum er sameiginleg sundlaug, garðar og leiksvæði fyrir yngstu börnin.
Costa Blanca Suður, Bajo Vinalopó, Elche, Arenales del Sol
Íbúðabyggðin við Arenales del Sol og aðliggjandi strönd hefur til margra ára verið eftirsóttur áfangastaður spænskra ferðalanga.
Ströndin við Arenales del Sol er um einn og hálfur km. að lengd, og því ein af þeim lengri við Costa Blanca. Við sjóinn rísa háar byggingar með stórkostlegu útsýni sem umkringdar eru margskonar þjónustu. Stór hluti fasteignaúrvalsins í Arenales del Sol samanstendur af tveggja og þriggja svefnherbergja íbúðum í innan við 300 m. fjarlægð frá ströndinni. Þessar fasteignir eru mjög eftirsóttar af þeim sem kjósa að njóta frítímans við ströndina. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Arenales del Sol.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum