Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca
Þessi eign er ekki í boði
REF 2064832
Nýr kjarni einbýlishúsa við La Finca Golf, í fallegu íbúðahverfi við bæinn Algorfa. Stórt og glæsilegt klúbbhús er á svæðinu ásamt verslanakjarna og veitingastöðum og fimm stjörnu hóteli með Spa. Hin fallega sandströnd í Guardamar er í aðeins 15 mínútna fjarlægð með bíl. Svæðið er vel tengt vegalega við helstu borgir og svæði, svo sem Alicante, Torrevieja og Orihuela Costa.
Tvær tegundir eigna eru í kjarnanum; einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, þakverönd og kjallara og einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Báðar tegundir húsa hafa opið alrými og tvöfaldar glerhurðar í stofu opnast útá verönd og sundlaugarsvæði. Á jarðhæð er svefnherbergi og baðherbergi og á efri hæð tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Hús með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum hefur baðherbergin með hverju herbergi og rúmgóða þakverönd með fallegu útsýni yfir golfvöllinn. Í þeim húsum er kjallari þar sem koma má fyrir tveimur bifreiðum og geymslu.
Allar eignirnar eru afhentar tilbúnar fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun, hafa gólfhita á baðherbergjum, einkasundlaug og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca
La Finca er afmörkuð íbúabyggð sem teygir sig utan um samnefndan golfvöll, La Finca Golf. Hér er að finna fyrsta flokks þjónustu eins og fimm stjörnu hótel, stórt klúbbhús, golfskóla, íþróttavöll og verslanasvæði með veitingastöðum og annarri þjónustu.
Fasteignirnar við La Finca Golf eiga sameiginlegt rólegt umhverfið og fallegt útsýni yfir dalinn. Í aðeins um 2 km. fjarlægð frá miðbæ Algorfa og allri nauðsynlegri þjónustu, og í 15 mín. fjarlægð frá ströndum Guardamar. Fullkominn staður fyrir þá sem leita eftir fasteign í nálægð við ströndina, langt frá skarkala en þó stutt í allt. Hér má sjá fasteignaframboðið við La Finca Golf.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum