Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 1517168
Einbýlishús sem staðsett eru við La Marquesa golfvöllin, í Ciudad Quesada. Hverfið býður upp á vatnagarð og mikið úrval dægradvalar og veitingastaða. Strendur Guardamar eru í aðeins 10 mínútna fjarlægð með bíl. Kjörinn staður fyrir þá sem leita að þægindum í næsta nágrenni og vilja njóta náttúrunnar við Miðjarðarhafið.
Húsin eru á tveimur hæðum og byggð á 265m2-268m2 lóðum, með eða án þakverandar. Báðar tegundir húsa hafa opna og rúmgóða stofu, borðstofu og eldhús, 3 svefnherbergi og 2 eða 3 baðherbergi. Í garði er flísalögð verönd, einkasundlaug og bílastæði á lóðinni. Hús með þakverönd hefur auka herbergi sem nota má sem líkamsræktaraðstöðu, viðbótar stofu, eða jafnvel auka svefnherbergi. Húsið er einnig með lyftu sem tengir allar hæðir.
Húsin eru afhent tilbúin til uppsetningar á loftkælingu/hitun, þeim fylgja fataskápar, einkasundlaug og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum