Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 19713
Nýtískulegur íbúðakjarni á einu flottasta svæði Ciudad Quesada, vinsælu og grónu hverfi við Suður Costa Blanca. Í Quesada er mikið úrval þjónustu og dægradvalar; verslanir og veitingastaðir, vatnsgarður og golfvöllur svo eitthvað sé nefnt. Aðeins 10 mínútna akstur er til strandanna í Guardamar og Torrevieja.
Ólíkar tegundir eigna bjóðast í kjarnanum; jarðhæð með eigin garði og efri hæð með þakverönd, báðar með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Ennfremur er möguleiki á einbýli með einkasundlaug. Eignirnar eru rúmgóðar, nútímalegar og með stórum björtum veröndum. Þær afhendast klárar fyrir uppsetningu á loftkælingu og bílastæði á sameiginlegu svæði fylgja. Sameiginleg sundlaug og garðar eru í kjarnanum.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum